Sumarnámskeið Frisbígolffélags Reykjavíkur 2026
Í sumar bjóðum við aftur upp á vinsælu krakkanámskeiðin okkar, þau eru ætluð fyrir krakka á aldrinum 6-16 ára. og verða á virkum dögum frá 10:00-14:00.
Á námskeiðinu læra krakkar undirstöðuatriði í frisbígolfi sem íþróttagrein. Við mætum krökkunum þar sem þau eru í færni, hvort sem þau eru byrjendur eða vön að spila. Við leggjum áherslu á kastæfingar, þjálfum pútt og spreytum okkur svo á völdum brautum á helsta keppnisvelli Íslands. Námskeiðið er svo brotið upp með fjölbreyttum leikjum.
Námskeiðið er haldið á frisbígolfvellinum í Grafarholti þar sem aðstaðan er til fyrirmyndar. Þar er pútt- og kastæfingasvæði, 18 brauta keppnisvöllur og 12 brauta fjölskylduvöllur. Í Grafarholti er svo félagsheimili FGR Geisli staðsett en þar er hægt að tylla sér og borða nesti og nýta salernisaðstöðu.
ATHUGIÐ! Öll námskeiðin eru fimm daga námskeið nema fyrsta námskeiðið sem er fjögurra daga vegna 17. júní!
Mæting í félagsheimili FGR (Þorláksgeisla 51) kl: 10:00 klædd eftir veðri.
Hlökkum til að sjá ykkur!