Félagsaðild og Árgjald 2026

Þú skráir þig í félagið með því að smella á hlekkinn hér neðst. Hann flytur þig á vefsvæði Abler og þar getur þú valið þá aðild sem hentar. Félagið er opið öllum sem vilja vera með, hvort sem þau spila mikið eða lítið eða vilja einfaldlega efla félagið í baráttunni fyrir bættri aðstöðu í borginni.

Gullaðild, 30.000 kr.:

  • Fullt gjald er 30.000 kr. Félagsaðild veitir 100% afslátt af mótsgjöldum vikulegra móta (30 pdga mót áætluð 2026) og flestra móta á vegum FGR nema stórmóta, sérstakra móta á borð við Púttdeild, Trilogy, texasmót og sérstök fjáröflunarmót eða fjáröflunarviðburði. Félagar fá forgang á inniæfingar félagsins að vetri til, aðrar en ungmennæfingar.

  • Töskumerki fylgir nýskráningum með gullaðild.

  • Afslættir í helstu frisbígolfverslanir hafa fylgt félagsaðild og skýrist fljótlega hvaða afslættir verða í boði í ár og verða upplýsingarnar settar hér inn þá.

Platínuaðild, 40-100.000 kr.:

  • Platínuaðild innifelur allt það sama og gullaðild en er fyrir þá félaga sem vilja styrkja félagið umfram hefðbundið félagsgjald.

Silfuraðild, 15.000 KR.:

  • Silfuraðild innifelur inniæfingar (laugardagar) og forgang í púttdeild (þriðjudagar) á veturnar. Unnið er að því að bæta við inniæfingu á haustönn á fimmtudögum frá og með hausti 2026. 100% afsláttur fyllgir silfuraðild af öllum almennum skemmtimótum félagsins (ekki styrktarmót eða pdga mót).

Bronsaðild, 0 KR.:

  • Folfarar sem ekki vilja nýta sér afslátt af mótsgjöldum eða námskeið en vilja gjarnan efla félagið og styðja við starfsemi þess geta gengið í það sér að kostnaðarlausu, fengið fréttir af starfinu og upplýsingar um brýnustu hagsmunamál folfara í borginni sem félagið vinnur að. Allir folfarar ættu að skrá sig í FGR og styðja þannig við starfsemi þess.

Afslættir:

  • Makar og sambýlingar félgasfólks fær 50% afslátt og ungmenni líka. Þá fá eldri borgarar og öryrkjar 50% afslátt af fullu gjaldi. Þessir afslættir eru ekki á abler, hafið samband við gjaldkeri@fgr.is til að ganga frá þeim.

Ef þú hefur einhverjar spurningar varðandi félagið og félagsaðildina geturðu sent póst á fgr@fgr.is og gjaldkeri@fgr.is eða heimsótt okkur á Facebooksíðu FGR og spjallað þar.

Skráðu þig hér