PDGA reglur, helstu breytingar sem taka gildi 2026
Nú þegar keppnissumarið nálgast, þá er ráð að fara yfir þær breytingar sem gerðar hafa verið á reglum leiks okkar frá því á síðasta tímabili. Hér fyrir neðan er farið lauslegar gegnum þær fjórar stærstu.
Fyrsta breyting snýr að því hvernig leikmenn dæma þegar flug, staða og/eða lega disk er óljós. Áður var það gert þannig að leikmenn greiddu atkvæði, og ef ekki náðist að mynda meirihluta þá var það sú niðurstaða sem best hentaði kastara sem varð ofan á.
Nú er breytingin sú að kastarinn tekur ekki lengur þátt í atkvæðagreiðslu, aukinheldur sem að nú er það kvöð á að allir í hópnum taki þátt. Kastarinn má í stuttu máli gefa álit sitt, en er ekki heimilt að reyna að knýja fram einhverja niðurstöðu með umtölum og rökræðum. Brjóti hann gegn því skal honum veitt háttvísis viðvörun, sama gildir reyni leikmaður að komast undan því að greiða atkvæði. Hafi þó einhver leikmaður ekki verið viðstaddur það sem dæma á um, er honum þó heimilt að taka ekki afstöðu.
Nái hópurinn ekki að komast að afgerandi niðurstöðu, þá er það undir kastaranum að kasta úrslitaatkvæðinu.
Önnur breyting snýr að tryggja tímanlega framgöngu leiks. Kastari hefur nú 30 sekúndur til að kasta
Af teig
Af fallreit
Innan 20 metra frá körfu.
Í öllum öðrum tilvikum hefur hann 45 sekúndur til að athafna sig. Kast tíminn hefst fyrst þegar komið er að leikmanni að gera, hann hefur fundið út hver lega næsta kasts er, brautin fram undan er auð og hann gefur til kynna með athöfnum að hann sé reiðubúinn til að kasta. Sem dæmi um athafnir sem gefa til kynna að leikmaður sé reiðubúinn til að kasta er:
Leikmaður merkir legu disks með merki.
Leikmaður tekur sér stöðu við legu.
Leikmaður tekur æfingarköst.
Leikmaður athugar vind.
Leikmaður hreinsar burt lausar hindranir
En þessi listi er ekki tæmandi.
Ef upp kemur sú staða að brautin sé ekki lengur auð, þá ber leikmanni að hætta við kast og tími hans hefst að nýju frá byrjun þegar brautin er greið.
Þriðja breytingin tekur til þess hvar og hvernig varaköst (provisional) eru framkvæmd. Varaköst má nota í þremur tilvikum.
Ef óljóst er, eða ekki samstaða um hvernig leik skal haldið áfram.
Ef leikmaður hefur í hyggju að áfrýja dómi.
Ef staða disks er óþekkt og möguleg staða hans myndi kalla á kast frá legu aftar í brautinni.
Varaköst má ekki nota í þeim tilvikum þegar spurningin snýst um hvort leikmaður hafi náð kvöð, þegar hann er að íhuga að endurkasta (abandon throw) eða þegar einvörðungu er óljóst hvort leik skuli haldið áfram með vítakasti.
Þegar leikmaður tekur varakast, þá skal hann tilgreina það skýrt til meðspilara, og taka fram ástæðu þess að þeir gera svo. Í framhaldinu skulu þeir svo gera skýrt grein fyrir því hvaða kast tilheyrir hvaða atburðarás.
Fjórða stóra breytingin er svo að það er búið að skýra út hvað skal gert ef leikmenn forfallast þannig að einungis tveir eða færri leikmenn eru eftir í hóp og ekki næst samband við mótsstjóra. Í þeim tilvikum skulu leikmenn:
Bíða eftir næsta hóp og útskýra málin fyrir þeim, að sameina þurfi hópana.
Ef fjöldi leikmanna í nýja sameinaða hópnum fer yfir fimm, þá færist sá leikmaður sem síðastur var í rásröð á fyrsta teig yfir í hóp með þeim sem vantaði leikmenn.
Allir leikmenn taka skor fyrir þá leikmenn sem eru í þeim hóp sem var myndaður.
Leikmenn klára leik í þeim hóp sem var myndaður, nema að mótsstjóri kveði á um annað.
Athuga skal þó, að þessi regla undanskilur leikmenn þó ekki frá þeirri kvöð að reyna að ná sambandi við mótsstjóra. Sé svo ekki gert, eða sé leik haldið áfram með færri en þrjá leikmenn í hóp, þá teljast allar þær brautir sem þannig hafa kláraðar hafa verið misspilaðar, og reiknast vítaköst eftir því.
Þessi listi er ekki tæmandi. Hægt er að nálgast allar breytingarnar á https://www.pdga.com/news/official-rules-disc-golf-and-competition-manual-disc-golf-events-updated-2026 og reglurnar í heild sinni á https://www.pdga.com/rules.