Sumarnámskeið fyrir börn í frisbígolfi

Í sumar bjóðum við aftur upp á vinsælu krakkanámskeiðin okkar, þau eru ætluð fyrir krakka á aldrinum 6-16 ára og verða á virkum dögum frá 10:00-14:00.

Á námskeiðinu læra krakkar undirstöðuatriði í frisbígolfi sem íþróttagrein. Við mætum krökkunum þar sem þau eru í færni, hvort sem þau eru byrjendur eða vön að spila. Við leggjum áherslu á kastæfingar, þjálfum pútt og spreytum okkur svo á völdum brautum á helsta keppnisvelli Íslands. Námskeiðið er svo brotið upp með fjölbreyttum leikjum.

Námskeiðið er haldið á frisbígolfvellinum í Grafarholti þar sem aðstaðan er til fyrirmyndar. Þar er pútt- og  kastæfingasvæði, 18 brauta keppnisvöllur og 12 brauta fjölskylduvöllur. Í Grafarholti er svo félagsheimili FGR Geisli staðsett en þar er hægt að tylla sér og borða nesti og nýta salernisaðstöðu.

ATHUGIÐ! Öll námskeiðin eru fimm daga námskeið nema fyrsta námskeiðið sem er fjögurra daga vegna 17. júní!

Mæting í félagsheimili FGR (Þorláksgeisla 51) kl: 10:00 klædd eftir veðri.

Hlökkum til að sjá ykkur!

Námskeið FGR fyrir börn verða eftirfarandi sumarið 2026:

NÁMSKEIÐ I
15.-19. júní

NÁMSKEIÐ II
29. júní - 3. júlí

NÁMSKEIÐ III
10. ágúst - 14. ágúst

NÁMSKEIÐ IV
17. ágúst - 21. ágúst

Frisbígolfkennarar FGR

  • Kristján Dúi Sæmundsson

    Frisbígolfkennari
    #102410

    Kristján Dúi þróttafræðingur er íþróttakennari í Hólabrekkuskóla. Hann hefur séð um ungmennaæfingar FGR frá 2018 ásamt sumarnámskeiðum fyrir börn og frisbíkynningum í skólum og fyrir aðra íþróttakennara.

    Kristján Dúi á 2 Íslandsmeistaratitla og 3 bikarmeistaratitla í MP40 flokknum.

  • Harpa María Reynisdóttir

    Frisbígolfkennari
    #123125

    Harpa María hefur kennt á barnanámskeiðum FGR síðustu ár ásamt því að taka að sér frisbígolfkennslu og kynningar víða um land.

    Harpa María er bikarmeistari FGR í FPO og siguregari FPO í Gullmótaröðinni 2025

  • Blær Örn Ásgeirsson

    Frisbígolfkennari
    #80554

    Blær Örn hefur kennt á krakkanámskeiðum í frisbígolfi síðustu ár og sinnt ýmissi fræðslu. Hann vinnur við liðveislu og nær á einstakan hátt til krakkanna.

    Blær er hæst reitaði frisbígolfspilari landsins og margfaldur Íslandsmeistari í MPO.

  • „Mitt helsta markmið er að kynna þessa frábæru íþrótt fyrir sem flestum og það er einstakt tækifæri að fá að gera það í gegnum grunn- og framhaldsskóla landsins. Ef við kveikjum áhugann á frisbígolfi hjá ungmennum landsins stuðlar það að aukinni hreyfingu og útivist ungs fólks. Held að ekkert sé mikilvægara en að koma krökkunum frá skjánum og út í náttúruna“

    —Kristján Dúi