Skólahópar

Frisbígolffélag Reykjavíkur (FGR) reynir að verða við óskum um að koma í skóla með frisbíkynningar eftir fremsta megni. Sömuleiðis eru skólahópir velkomnir í æfingaaðstöðuna okkar og völlinn í Grafarholtinu, Þoráksgeisla 51, 113 Reykjavík, FGR getur lánað diska og jafnvel annast kennslu þegar þannig stendur á.

Hafiði samband við okkur með netpósti fgr@fgr.is ef þið viljið heimsækja okkur eða fá heimsókn til ykkar.

Við vekjum athygli á að FGR er byggt á sjálfboðaliðastarfi og því er ekki alltaf öruggt að það sé mannskapur til að taka á móti hópum eða heimsækja skóla á öllum tímum.