Vetraræfingar 2026-2027
Undanfarna vetur hefur frisbígolffélag Reykjavíkur (FGR) boðið upp á vikulegar inniæfingar annnars vegar fyrir börn og hins vegar púttæfingar fyrir fullorðna.
Krakkar 6 - 18 ára
Æfingarnar fara fram í íþróttahúsinu við Breiðholtsskóla á mánudagsdagskvöldum klukkan 18:10 - 20:00 og fimmtudagskvöldum 19:15 - 20:30.
Kennari: Kristján Dúi Sæmundsson
Skráning á abler:
Fullorðnir
Á fimmtudögum kl 20:30 er vikuleg púttdeild FGR í Breiðholtsskóla. Skráning í púttdeild er auglýst vikulega á facebook síðu félagsins. Greiddar er 1.000 kr. í verðlaunapott til að taka þátt. Forgang í púttdeild eiga félagsmenn FGR.
Egilshöll
Tíminn okkar á laugardögum í Egilshöll fellur því miður niður alla vega fyrri part vetrar 2026-2027 vegna vinnu við viðhald útivalla sem gerir það að verkum að húsið er umsetnara en vanalega. Félagsmenn FGR fá aðgang ef tími losnar og verður það þá auglýst með skömmum fyrirvara á facebook síðu félagsins.
Frekari fyrirspurnir má alltaf senda á fgr@fgr.is
Birt með fyrirvara um breytingar 28. ágúst 2026