FRISBÍGOLFKYNNINGAR OG MÓT FYRIR HÓPA, svo sem vinahópa og starfsmannahópa
Frisbígolffélag Reykjavíkur (FGR) býður upp á frisbíkynningar/námskeið fyrir hópa. FGR býður upp á frisbíkynningar / námskeið fyrir hópa. Við byrjum yfirleitt á stuttri kynningu um frisbígolf, sýnum helstu undirstöðuatriði og spilum svo nokkrar holur með eða án leiðsögn eða setjum upp mót fyrir starfsmannahópa.
Einnig er mögulegt að grilla í aðstöðunni í Geisla, Þorláksgeisla 51, eftir námskeið/mót. Sendu okkur fyrirspurn á fgr@fgr.is með dagsetningum sem koma til greina, stærð hóps og hvort áhugi er á stuttri kynningu, leiðsögn með spili og / eða uppsetningu móts og við sendum þér tilboð í viðburðinn.