Aðalfundur FGR 2021

Aðalfundur FGR var haldinn með fjarfundarsniði þann 28. janúar. Aðalfundarstörf voru að mestu hefðbundin. Farið var yfir starfsárið í skýrslu stjórnar og bar þetta hæst:

COVID-19 og samkomutakmarkanir settu svip á allt starf FGR árið 2020. Þrátt fyrir þær tókst að halda úti öflugri mótaskrá og dagskrá stærstan hluta ársins.

Alls stóð FGR fyrir 56 viðburðum í 13 mótum og mótaröðum. Þátttakendur voru alls: 1790 (869 árið áður). Þátttaka að meðaltali: 39 (23 árið áður). 96,7% aukning þáttakenda í mótum á vegum FGR milli ára.

Samskipti við Reykjavíkurborg sneru að stærstum hluta að því að koma aðstöðumálum í farveg. Árangur þess ætti að skýrast á fyrri hluta árs 2021. Farið var formlega fram á heimild til stækkunar Grafarholtsvallar og uppbyggingu aðstöðu FGR þar, stækkun Breiðholtsvallar í 18 brautir, mótvægisaðgerðir vegna lagningar göngustígs í Gufunesi og leit að framtíðarstæði fyrir keppnisvöll á alþjóðlegan mælikvarða.

Samskipti við ÍBR, UMFÍ og ÍSÍ snerust annars vegar um aðstöðumál og fjárhagsstyrki og hins vegar um samræmingu ráðstafana vegna COVID-19.

Hagnaður af starfsemi félagsins var þokkalegur.

Stjórn FGR var kjörin: Ólafur Haraldsson, formaður, Guðrún Fjóla Guðmundsdóttir, gjaldkeri, Dagur Páll Ammendrup, ritari, Kristján Dúi Sæmundsson og Sturla Már Hafsteinsson. Í varastjórn voru kjörin þau Kolbrún Mist Pálsdóttir, Heimir Jón Heimisson og Ragnhildur Einarsdóttir.

IMG_1013.jpeg
Previous
Previous

PDGA reglur, helstu breytingar sem taka gildi 2026

Next
Next

Dagskráin 2020