Dagskráin 2020
Að loknu hléi vegna COVID-19 fer dagskrá FGR af stað á ný með varúð þann 4. maí. Í sumar sér félagið um framkvæmd þriggja stórmóta í Íslandbikarnum og eins munum við sjá um Þriðjudagsdeildina í samstarfi við Frisbígolfbúðina. Auk þessa stendur félagið fyrir Fimmtudagsdeild, Ljósamótum, púttdeild, nýliðanámskeiðum, krakkanámskeiðum, ungmennaæfingum og almennum æfingum innanhúss, og margháttuðu kynningar- og útbreiðslustarfi í samstarfi við íþróttahreyfinguna og Reykjavíkurborg. Stór hluti viðburðanna er innifalinn í félagsgjaldi FGR og er því ekki eftir neinu að bíða fyrir fólk að skrá sig hér og byrja að kasta fyrir allan peninginn. Dagskráin er aðgengileg hér og á matseðlinum efst á síðunni og verður nánari upplýsingum um hvern viðburð bætt inn um leið og þær skýrast. Eins má skoða stundaskrá ársins á PDF með því að smella á hlekkinn hér að neðan: