Aðalfundur FGR 2020

Á aðalfundi FGR var flutt skýrsla stjórnar fyrir síðasta starfsár. Þar var farið yfir helstu verkefni ársins. Félagið stóð fyrir 55 viðburðum í 11 mótum og mótaröðum,tvö vikunámskeið fyrir krakka voru haldin síðastliðið sumar, inniæfingar voru í skólasölum og Egilshöll, framkvæmdir og endurbætur við vellina í Grafarholti, Gufunesi, Laugardal og Fossvogi, þátttaka í starfi ÍBR, samskipti við Reykjavíkurborg, samstarf við skóla og önnur íþróttafélög um frisbígolf fyrir krakka, aðstöðumál félagsins, sumarstarfsfólk ráðið og stuðningur borgarinnar við starfsemina skipti sköpum fyrir góða afkomu og öflugt starf. Síðast, en ekki síst, var fróðleg samantekt um verðmæti sjálfboðavinnu félagsfólks sem meta má á milljónir eða milljónatugi - allt eftir því hvort miðað er við lægstu dagvinnutaxta verkafólks eða útselda tíma lögfræðinga.

Að lokinni afgreiðslu lagabreytinga var kjörin stjórn:
Ólafur Haraldsson,
Guðrún Fjóla Guðmundsdóttir,
Kristján Dúi Sæmundsson
Sturla Már Hafsteinsson
Hólmar Holz Árnason

Varastjórn:

Ragnhildur Einarsdóttir
Dagur Páll Ammendrup
Kolbrún Mist Pálsdóttir
Heimir Jón Heimisson

Samþykktar voru tvær breytingar á lögum félagsins:

6. grein laga Frisbígolffélags Reykjavíkur hljóðar nú svo:

„Aðalfund skal halda í janúar ár hvert nema sérstakar og óvenjulegar aðstæður krefjist annars og þá eigi síðar en 1. mars sama ár. Boða skal til aðalfundar með minnst tveggja vikna fyrirvara með sannanlegum hætti. Rétt til setu á aðalfundi og atkvæðisrétt á fundinum og kjörgengi til stjórnar hafa allir skráðir félagar sem náð hafa 18 ára aldri og skulda ekki félagsgjöld vegna almanaksársins á undan. Framboð til stjórnar og tillögur sem leggja á fyrir aðalfund verða að hafa borist stjórn minnst sjö dögum fyrir boðaðan aðalfund. Aðalfundur er löglegur, sé rétt til hans boðað. Einfaldur meirihluti félagsfólks á aðalfundi ræður úrslitum mála. Dagskrá aðalfundar skal vera sem hér segir:

1. Kosning fundarstjóra og fundarritara
2. Skýrsla stjórnar lögð fram
3. Reikningar lagðir fram til samþykktar
4. Lagabreytingar
5. Ákvörðun félagsgjalds
6. Kosning til stjórnar og annarra trúnaðarstaða
7. Önnur mál“

7. grein laga Frisbígolffélags Reykjavíkur hljóðar nú svo:

„7.gr.
Stjórn félagsins skal skipuð 5 úr hópi félagsfólks, kjörnum á aðalfundi til eins árs í senn. Einnig er heimilt að kjósa allt að 5 varamenn. Stjórnin skiptir með sér verkum. Stjórn félagsins fer með málefni félagsins milli aðalfunda. Formaður boðar til funda. Firmaritun er í höndum meirihluta stjórnar.“

Þá var samþykkt að félagsgjald Gullaðildar skyldi vera 20.000 kr. fyrir árið og Silfuraðildar 10.000 kr. Í Gullaðild er nánast allt sem hugurinn girnist innifalið, en Silfuraðild er takmarkaðri. Hægt er að skrá sig í félagið hér og hvetjum við öll til að gera það. Félagið er opið öllum, óháð búsetu.

IMG_9839.jpg
Previous
Previous

Dagskráin 2020

Next
Next

Aðalfundur FGR 2019